|
|
|
Vinnunefnd ICES, (Alþjóða hafrannsóknaráðsins) um lax
í Norður-Atlantshafi
Um langt árabil hefur Veiðimálastofnun tekið þátt í vinnunefnd Alþjóða hafrannsóknaráðsins (International Council for Exploration of the Sea, skammstafað ICES) um lax í Norður-Atlantshafi. Vinnunefndin heldur árlega vinnufundi en til þeirra mæta vísindamenn frá þeim löndum sem fóstra Atlantshafslax. Á vinnufundunum er farið yfir þau gögn sem fyrir liggja varðandi stöðu laxastofna auk þess sem leitað er svara við spurningum frá fiskveiðiráðgjafarnefnd ICES og frá NASCO (Alþjóða laxaverndunarstofnunarinnar). Þá er einnig leitast við að meta veiðiþol stofna og gefa NASCO ráð varðandi veiðikvóta á laxi við Færeyjar og Grænland. Þá veitir vinnunefndin ICES ráðleggingar verðandi þær rannsóknir sem taldar eru nauðsynlegastar til að undirbyggja nýtingu og verndun laxastofna.
ICES hefur lagt til við aðildarríkin að farið verði eftir varúðarreglu (precautionary principle) við nýtingu og verndun laxastofna. Þá hefur ICES markað þá stefnu að stjórna skuli veiðum úr hverjum laxastofni út frá skilgreindum fjölda laxa sem nauðsynlegur er til hrygningar hverri á, ár hvert. Þar með sé skilgreint veiðiþol stofna og að veiðar megi ekki ganga það nærri stofnum að nýtingin geti haft áhrif til minnkunar stofna eða sett stofna þá í hættu af þeim sökum. Það sem er umfram þann fjölda sem þarf til hrygningar er það sem er til skiptanna fyrir veiði.
 |
| Frá vinnufundi ICES í apríl 2005 |
Aðalstöðvar ICES (Alþjóða hafrannsóknaráðsins) eru í Kaupmannahöfn. Árlegar skýrslur vinnunefndar um lax í Norður-Atlantshafi eru gefnar út af ICES. Síðasti vinnufundur var haldinn í Nuuk á Grænlandi, 5.-14. apríl 2005 og hér má finna síðustu skýrslu vinnunefndarinnar.
Í skýrslunni er að finna ítarlegt yfirlit yfir stöðu laxastofna, nýtingu og rannsóknir. Þar koma fram ráðleggingar um nýtingu í laxveiðum í sjó auk áherslna sem vinnunefndin telur mikilvægastar varðandi frekari rannsóknir og þekkingarleit.
Sá gagnagrunnur sem liggur í upplýsingum um veiði á Íslandi hefur reynst mikilvægur varðandi vinnu í vinnunefnd ICES. Söfnun upplýsinga í lykilám (Index ám) er í flestum þeim löndum sem fóstra lax og mikilvægur þáttur í vinnu nefndarinnar.
|