14. júní 2013 |
Fyrstu smálaxarnir eru mættir í árnar og sýna góðan vöxt í sjó |
 |
| Hreistur af 60,3 cm smálaxahæng, sem veiddur var í Þjórsá 12.júní. Hann hefur dvalið þrjú ár í ferskvatni og eitt ár í sjó. Smellið á mynd til að sjá hana stærri. | Eins og mönnum er enn í fersku minni var smálaxagengd (lax sem er 1 ár í sjó) og veiði síðasta sumar lítil. Rannsóknir á hreistri sýndu að sjávarvöxtur smálaxa í fyrra var mjög lélegur.
Gagnaraðir Veiðimálastofnunar sýna að þegar vöxtur er lítill í sjó eru göngur einnig litlar og þar með veiði. Þetta skýrist af því að þegar skilyrði eru erfið í sjó er vöxtur minni og afföll meiri.
Nú eru fyrstu smálaxar sumarsins farnir að sýna sig á veiðislóð. Sýni hafa verið tekin af laxi í Norðurá og í Þjórsá. Mælingar af smálaxahreistri úr báðum þessum ám sýna að sjávarvöxtur er góður. Þetta eru góðar fréttir og gefur sterka vísbendingu um að smálaxagengd á Suður- og Vesturlandi verði mun betri en á síðastliðnu sumri. Smálax á Norðurlandi kemur heldur síðar og þarf einnig að fylgjast vel með ástandi hans þegar hann sýnir sig.
Lax er farinn að sýna sig víða í ám. Vísbendingar eru um að stórlax sé smár eins og við mátti búast enda var lax af sama árgangi þ.e. smálax í fyrra smár. Hins vegar er smálax einnig mættur í ár á Suður og Vesturlandi sem er snemmt og veit á gott með veiði sumarsins.
|
| |
10. maí 2013 |
Námur og efnistaka |
Opnaður hefur verið nýr vefur um efnistöku og námur. Að vefnum standa Vegagerðin, Landsvirkjun og Umhverfisstofnun. Þar er að finna upplýsingar um efnisnám og hvernig best er að standa að ýmsum þáttum þess. Einnig er safnað saman upplýsingum um lagaumhverfi og leyfisveitingar. Veiðimálastofnun lagði til efni er varðar malartekju í ám sem oft hefur verið til vandræða.
|
| |
15. apríl 2013 |
Undirstöður lífs í Úlfarsá mældar. Frumframleiðni mæld í fyrsta skiptið í íslenskri laxveiðiá |
 |
| Unnið að rannsókn á vettvangi og rannsóknastofu | Nýlega hóf Veiðimálastofnun rannsókn á grunnþáttum í lífríki Úlfarsár, eða Korpu, eins og hún er einnig nefnd. Óhætt er að fullyrða að hér sé um tímamótarannsókn að ræða því frumframleiðni hefur ekki áður verið mæld í straumvatni á Íslandi.
Frumframleiðni er í grunninn framleiðsla á lífrænu efni úr koldíoxíð og nánast allt líf á jörðinni er á einn eða annan hátt háð því ferli. Frumframleiðendur eru þær lífverur sem geta beislað orku sólarljóssins og nýtt hana til þessarar framleiðslu. Lífræn efni sem þannig myndast, nýtast í efri þrepum fæðukeðjunnar og er því á óyggjandi hátt undirstaða fyrir öllu lífi. Þörungar eru án efa afkastamestir meðal frumframleiðenda í ám hér á landi. En auk þeirra eru mosar og háplöntur einnig mikilvægir hlekkir í fæðukeðjum. Þessar lífverur eru því undirstaða fyrir aðrar lífverur í vatni þ.m.t. laxfiska. Í áratugi hefur Veiðimálastofnun fylgst með fiskstofnum í straumvatni, m.a. fjölda og ástandi laxaseiða, göngu þeirra til sjávar og fjölda þeirra sem endurheimtast úr hafi sem fullorðnir laxar. Hefur aðferðum og tækni við að fylgjast með þessum þáttum þróast mikið t.d. í merkjum til að fylgjast með fari fiska og fiskteljurum sem fylgjast með uppgöngu laxfiska eftir sjávardvöl.
Smellið á meira...
|
meira... |
| |
22. mars 2013 |
Ágrip af greinum í ársskýrslu Veiðimálastofnunar |
Í ársskýrslu Veiðimálastofnunar er m.a. finna ágrip af greinum starfsmanna sem birst hafa í ritrýndum tímaritum eða ritröðum. Um er að ræða greinar sem snerta ýmis efni.
-
Samhæfð vöktun líffræðilegs fjölbreytileika í ferskvatni á norðurslóðum
-
Breytileiki í kísilþörunga og mosasamfélögum í misheitum norðlægum lækjum: líkön fyrir stærri vistkerfi?
-
Þverfaglegar rannsóknir á sviði náttúrulífsferðamennsku; Samspil á milli landsela (Phoca vitulina) og ferðamanna á Vatnsnesi, Íslandi
-
Lífsferlar Eukiefferiella claripennis (Lundbeck 1898) og Eukiefferiella minor (Edwards 1929) (Diptera: Chironomidae) í lindalækjum með hliðsjón af loftlagsbreytingum
-
Aldur og greining á vaxtarmynstri í sjávardvöl unglaxa í Norðaustur Atlantshafi
-
Áhrif loftslagshlýnunar á gerðir og virkni lífveru-samfélaga í ferskvatni: einstklingar upp í heil vistkerfi
-
Hvaðan koma íslenskar sæsteinsugur (Petromyzon marinus)?
-
Hegðun stóðhesta í hálfvilltu stóði á Íslandi: tímanotkun, heimasvæði og samskipti
-
Áhrif stóðhesta á félagsleg samskipti hópameðlima
-
Lífssögulegir þættir hjá sjóbirtingi í tveimur íslenskum ám
Þeir sem vilja kynna sér innihald þessara greina frekar geta nálgast þær upplýsingar hér (ársskýrslan). Auk þess er er bent á ritaskrá Veiðimálastofnunar en skýrslur stofnunarinnar eru aðgengilegar á heimasíðu stofnunarinnar hér.
|
| |
20. mars 2013 |
Ársfundur í dag og ársskýrsla komin á netið |
Minnum á ársfund Veiðimálastofnunar í dag. Hann verður haldinn á Hótel Natura og hefst kl. 14. Hægt er að skoða dagskrá fundarins í fyrri frétt.
Ársskýrsla stofnunarinnar er komin inn á heimasíðuna og er hægt að skoða hana HÉR (pdf).
|
| |
8. mars 2013 |
Ársfundur Veiðimálastofnunar verður 20. mars |
Ársfundur Veiðimálastofnunar verður haldinn á Hótel Natura miðvikudaginn 20. mars og byrjar kl. 14.
Að þessu sinni verður staða laxins krufinn til mergjar. Hvað gerðist síðasta sumar og hvers er að vænta í sumar og á komandi árum? Fiskifræðingar Veiðimálastofnunar fara yfir málið. Á fundinum flytur einnig erindi norskur samstarfsmaður, Jens Christian Holst, fiskifræðingur. Hann hefur skoðað uppsjávarvistkerfi Norður Atlantshafsins og fiskistofna þar, kolmunna, síld, makríl og lax. Hvernig er sveifla í stofnstærð þessara tegunda og hvað stýrir sveiflunum? Hvers er að vænta á komandi árum? Hvernig verður makrílveiðin, hvað með laxinn?
Allt stefnir því í áhugaverðan fund.
Hér má skoða dagskrá fundarins. |
| |
28. febrúar 2013 |
Landsýn - vísindaþing landbúnaðarins |
verður haldið í aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 8. mars kl. 10-17.
Boðið verður upp á rútuferð frá Reykjavík til Hvanneyrar og til baka eftir þingið. Brottför frá BSÍ kl. 8 og Keldnaholti kl. 8:20, heimferð frá Hvanneyri klukkan 17:00.
LANDSÝN 2013 skiptist í fjórar málstofur auk veggspjaldakynningar:
A. Áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi, lífríki og ræktun; hvað hefur gerst og hvað getur gerst B. Ástand og nýting afrétta C. Fóður og fé D. Sjálfbær ferðaþjónusta og heimaframleiðsla matvæla
Skráning:
Vinsamlega skráið þátttöku í síðasta lagi mánudaginn 4. mars með því að senda tölvuskeyti til: landsyn@lbhi.is og setjið –skráning- í efnishaus. Í skeytinu þarf að koma fram nafn, vinnustaður, hvort vinnuveitandi greiði ráðstefnugjald eða greitt verði á staðnum og hvort viðkomandi hyggst nýta sér rútuferðina. Ráðstefnugjaldi verður stillt í hóf, kr. 5000. Rútufargjald og veitingar innifalið.
LANDSÝN tekur við af Fræðaþingi landbúnaðarins og að ráðstefnunni standa Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landgræðsla ríkisins, Matvælarannsóknir Íslands (Matís), Skógrækt ríkisins og Veiðimálastofnun.
Nánari upplýsingar um dagskrá þingsins er að finna hér og í pdf skjali hér. |
| |
18. febrúar 2013 |
Hið villta norður - The Wild North, nýbirt fræðigrein |
Sandra Granquist, dýraatferlisfræðingur og sameiginlegur starfsmaður Veiðimálastofnunar og Selaseturs Íslands birti nýlega grein ásamt Per-Åke Nilsson ferðamálafræðingi hjá Selasetri Íslands. Greinin var birt í ritrýndri fræðibók að nafni New Issues in Polar Tourism: Communities, Environment, Politics. Greinin fjallar um uppbyggingu og stjórnun á verkefninu Hið villta norður (The Wild North). Markmið verkefnisins er að stuðla að sjálfbærri þróun náttúrulífsferðamennsku á Norðurslóðum.
Hér er hægt að nálgast greinina.
|
| |
12. febrúar 2013 |
Veiðimálastofnun og þekkingarsetrið á Blönduósi hafa gert með sér samstarfssamning |
31. janúar 2013 |
Selatalningin mikla í Húnaþingi vestra |
11. janúar 2013 |
Samhæfð vöktun líffræðilegs fjölbreytileika í ferskvatni á norðurslóðum |
8. janúar 2013 |
Skýrslugrunnur Veiðimálastofnunar |
21. desember 2012 |
|
13. desember 2012 |
Langlífur lax |
29. nóvember 2012 |
Fylgst með göngum laxa í Efri-Selá |
27. nóvember 2012 |
Hvatning til veiðiréttarhafa um að skila veiðibókum fyrir stangveiði og veiðiskýrslum fyrir netaveiði. |
5. nóvember 2012 |
Lækir á háhitasvæðinu í Henglinum nýttir til að spá fyrir um áhrif loftslagshlýnunar á vatnalíf |
30. október 2012 |
Life history traits of sea trout in two Icelandic rivers |
13. október 2012 |
Laxveiðin sumarið 2012 – tengsl við áhrifaþætti í ám og í sjó |
12. október 2012 |
Málþing um stöðu stangaveiði á Íslandi |
18. september 2012 |
Ráðherra í heimsókn |
11. september 2012 |
Veiðimálastofnun flyst milli ráðuneyta |
22. ágúst 2012 |
Skráning í Skrínuna gengur vel |
17. ágúst 2012 |
Veiðimálastofnun og Hólaskóli hafa gert með sér samstarfssamning |
eldri fréttir
|