VeiðinýtingLífríkiRannsóknirRáðgjöf
Leita
English
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Rafræn veiðiskráning
Rafræn veiðiskráning
Skráning á póstlista
Leitarorð
Höfundur
Bjarnafoss í Tungufljóti

Skrínan

rafræn veiðibók 

Veiðiréttareigendum/leigutökum kostur á að skrá veiði rafrænt um vefinn. Veiðimálastofnun og Fiskistofa hafa um nokkurt skeið unnið að veflausn sem gerir slíka skráningu mögulega. Upplýsingar um veiði eru skráðar þar með sama sniði og þær koma fyrir í veiðibókunum, sem menn þekkja. Einstakar skráningar verða sýnilegar í rafrænni veiðibók jafnharðan og þær hafa verið skráðar, auk þess sem þar verða samtölur um veiði einstakra áa. Sérstakur hnappur á vef Veiðimálastofnunar (á lóðréttri stiku vinstra megin) vísar leiðina á veiðitölurnar.
 
Veiðiskráning með þessum hætti breytir miklu varðandi aðgengi veiðimanna og almennings að nýjustu veiðitölum. Ekki er ætlunin að hætta skráningu í hefðbundnar veiðibækur að sinni a.m.k., enda eru þær nauðsynleg frumheimild um veiðina á hverjum tíma, auk þess sem e.t.v. hafa ekki allir möguleika á að skrá veiði jafnóðum inn í kerfið (s.s. vegna tölvutenginga). Nokkrir aðilar halda nú þegar rafræna veiðibók og eru þeir hvattir til að nýta sér þennan möguleika til veiðiskráningar.
 
Skráning á veiði í fersku vatni hér á landi hefur verið í mjög föstum skorðum um árabil. Við upphaf veiðitíma hafa veiðibækur verið sendar til veiðiréttarhafa sem síðan endursenda þær til Veiðimálastofnunar að veiðitíma loknum. Veiðimálastofnun hefur annast samantekt veiðitalna í samstarfi við Fiskistofu, en upplýsingar úr veiðibókum eru m.a. notaðar við mat á verðamæti veiða, skiptingu arðs og mati á stöðu stofna og árangri fiskræktar. Svo ítarleg skráning á veiði, þar sem hver einstakur fiskur er skráður ásamt upplýsingum um hann, er einsdæmi í heiminum. Verðmæti gagnanna er mikið og mikilvægt að skráningin rofni ekki.
 
Veiðiréttareigendur og/eða leigutakar eru hvattir til að huga að rafrænni skráningu á veiði.  Þeir sem hyggjast nýta sér þessi nýmæli þurfa að sækja um aðgang á heimasíðu Veiðimálastofnunar. Frekari upplýsingar um rafræna skráningu veiðitalna má nálgast hjá Veiðimálastofnun í síma 580 6300.

 

 

Sækja um aðgang

  
  

Skrá veiðitölur

  

Skoða veiðibók á vef