Um verkefnið

 

Alþingi samþykkt þann 10. mars 1999 þingsályktun um stuðning ríkisvaldsins við kræklingarækt og annan fjörubúskap.  Í þingsályktinni kemur fram:

“Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa, með lagasetningu ef með þarf, kræklingaeldi og hvers konar annan fjörubúskap sem ætla má að verði á næstu árum tekinn upp á lögbýlum sem aðgang eiga að sjó og að sjá til þess að á viðeigandi rannsóknastofnun verði sú sérfræðiþekking fyrir hendi sem að haldi má koma og þarf til þess að leiðbeina væntanlegum ræktendum skelfisks og hafa fullnægjandi eftirlit með framleiðslu þeirra í samræmi við kröfur einstakra markaða”.

 

Kræklingaverkefnið hófst í byrjun ársins 2000 með upplýsingaöflun.  Um sumarið 2000 voru fengnir til landsins sérfræðingar á vegum  Atlantic Veterinary College, University of Prince Edward Island í Kanada til að leiðbeina íslenskum kræklingaræktendum.  Kræklingaverkefnið er á vegum Veiðimálastofnunar og er fjármagnað með árlegu framlagi úr ríkissjóð, en einnig hefur Framleiðnisjóður styrkt verkefnið. Skeldýrasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun hefur unnið að rannsóknum á líffræði ræktaðs kræklings.

Markmið með kræklingaverkefninu er að:

  • Meta hvort kræklingarækt á Íslandi geti orðið arðsöm atvinnugrein.

  • Vinna að mikilvægum rannsókna- og þróunarverkefnum innan kræklingaræktunar.

  • Ráðgjöf og miðlun upplýsinga til kræklingaræktenda með því að:

     

    • Halda minnst eitt námskeið á hverju ári.

    • Heimsækja hvern kræklingaræktanda 1-2 sinnum á ári.

    • Reka sérhæfða heimasíðu fyrir kræklingarækt.

    • Gefa út á hverju ári skýrslu sem gefur yfirlit yfir framgang kræklingaræktunar á Íslandi.